Erlent

Íbúar og flóttamenn í hættu í vetrarveðrinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Unnið var á snjóðruðningstæki við að hreinsa hraðbraut A27 nærri Achim í Norður-Þýskalandi í gær.
Unnið var á snjóðruðningstæki við að hreinsa hraðbraut A27 nærri Achim í Norður-Þýskalandi í gær. vísir/epa
Frostbylur hefur valdið miklum skaða í vesturhluta Evrópu, meðal annars valdið því að mörg heimili hafa orðið rafmagnslaus, tré hafa fallið og lestarsamgöngur farið úr skorðum. Í Frakklandi hafði rafmagnsleysi áhrif á yfir 237 þúsund heimili í Normandí og svæði norður af París. Við ströndina, í Dieppe, náði vindurinn 146 kílómetra hraða á klukkustund.

Stormurinn, sem kallaður er Egon, fór síðan yfir suðurhluta Þýskalands og olli rafmagnsleysi og miklu umferðaröngþveiti.

Björgunarsveitir höfðu í nógu að snúast í fyrrinótt í Frakklandi og í Þýskalandi. Kona lét lífið í Saint-Jeannet í suðausturhluta Frakklands eftir að tré féll á hana. Hún var að gera börn sín reiðubúin fyrir skólann þegar slysið varð.

Sums staðar í Frakklandi var skólahaldi aflýst. Í heimsfrægri kapellu í Soissons, sem er norðan við París, brotnaði rúða og orgel þar inni skemmdist.

Ökumenn hafa verið varaðir við hættulegum aðstæðum á vegum í Þýskalandi vegna snjókomu og íss. Þrír ökumenn létust í árekstrum í Bavaríu. Á sama tíma hafa flóðvarnir verið styrktar á ströndum Belgíu.

Óveðrið í Evrópu hefur kostað að minnsta kosti 65 manns lífið. Allt er snævi þakið í Póllandi og á það líka við um stóran hluta af Suðaustur-Evrópu, þar á meðal Rúmeníu, Búlgaríu, Grikkland og vesturhluta Tyrklands. Þar er jafnframt mjög kalt.

Þúsundir flóttamanna á Balkanskaga eru lítt búnir til þess að takast á við þessi skilyrði. Margir þeirra hafast við í tjöldum og hafa lítil tækifæri til að hita upp vistarverur sínar.

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna segir að fjöldi flóttamanna hafi örmagnast og dáið úr kulda í Búlgaríu. Stofnunin hvatti Grikki til að flytja flóttamenn með hraði í betri vistarverur á meginlandinu, eftir að fréttir bárust af því að í Samos hefðu að minnsta kosti 1.000 manns hafst við í óhituðum byggingum.

Vindurinn og snjórinn í Þýskalandi varð til þess að flugfélagið Lufthansa þurfti að fresta 125 flugferðum frá flugvellinum í Frankfurt. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×