Innlent

Íbúar á Íslandi nú 328.170

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/ernir
Í lok þriðja ársfjórðungs 2014 bjuggu 328.170 manns á Íslandi – 164.710 karlar og 163.460 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.130 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 23.840 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 210.660 manns. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Þá fæddust 1.200 börn á þriðja ársfjórðungi en 510 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 420 einstaklingar til landsins umfram brottflutta.

Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu

Í lok 3. ársfjórðungs 2014 bjuggu 328.170 manns á Íslandi, 164.710 karlar og 163.460 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.130 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 23.840 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 210.660 manns. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 440 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 860 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk helsti áfangastaður og flestir komu frá Danmörku

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 450 manns á 3. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 1.120 íslenskir ríkisborgarar af 1.460 alls. Af þeim 710 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 210 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (310), Noregi (220) og Svíþjóð (190), samtals 720 manns af 1.020. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 450 til landsins af alls 1.570 erlendum innflytjendum. Bandaríkin komu næst, en þaðan fluttust 90 erlendir ríkisborgarar til landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×