Lífið

Ian Somerhalder kominn með nýja

Nikki Reed og Ian Somerhalder eru að sögn erlendu pressunnar nýjasta Hollywoodparið. Til þeirra sást um helgina þar sem þau skelltu sér út að skokka saman og stuttu síðar brugðu þau sér inn í verslun þar sem þau létu vel að hvort öðru.

Reed og Somerhalder hafa verið vinir um langt skeið og fóru þau lengi vel á tvöföld stefnumót ásamt elskhugum sínum fyrrverandi. 

Margir muna eftir Nikki Reed sem Rosalie úr Twilight-seríunni á meðan Somerhalder fer með hlutverk Damons Salvatore í The Vampire Diaries. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×