Íslenski boltinn

ÍA steig stórt skref í átt að Pepsi-deildinni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/Daníel
Hallur Flosason tryggði ÍA afar mikilvægan sigur í baráttunni um laust sæti í Pepsi-deild karla á næsta ári, en liðið vann BÍ/Bolungarvík í dag.

Leikurinn fór fram á Akranesvelli, en Hallur skoraði eina mark leiksins eftir sextán mínútna leik.

Með sigrinum fór ÍA í 39 stig, en Víkingur Ólafsvík er sjö stigum á eftir ÍA þegar þrjár umferðir eru óleiknar.

BÍ/Bolungarvík er í tíunda sæti deildarinnar, sex stigum á undan KV sem er í því ellefta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×