Í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga æskuvinkonu sinni Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 24. maí 2018 16:51 Málið var rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Vísir/Hanna
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa í september 2014 nauðgað æskuvinkonu sinni sem ekki gat spornað við verknaðinum sökum svefndrunga og ölvunar. Að kvöldi föstudagsins 5. september 2014 borðuðu þau saman á heimili mannsins, en þau höfðu sem fyrr segir verið vinir frá æsku og tilheyrt sama vinahóp upp frá því. Drukku þau áfengi með matnum og orðið „töluvert drukkin“ er þau ræddu gamla tíma.Konan lagði fram kæru á hendur manninum í febrúar 2017 en við skýrslutöku hjá lögreglu sagðist hún hafa vaknað upp við það að maðurinn hafi verið að hafa við hana samræði um leggöng aftan frá. Hún hafi risið upp og fært sig frá ákærða. Sökum ölvunar hafi hún strax lognast út af aftur.Ákvað að reyna að „lifa með þessum atburði“Þegar hún vaknaði um morgunin hafi hún verið aum í kynfærunum en „á þeirri stundu ákveðið að reyna að lifa með þessum atburði.“ Mánuðum síðar áttaði sig hún hins vegar á því hvers eðlis brotin hafi verið og sótti hún sér aðstoð til að glíma við afleiðingarnar af atburðum kvöldsins.Maðurinn neitaði alfarið sök og sagðist hann hafa spurt konuna hvort hann mætti sofa hjá henni og sagði hana hafa samþykkt það. Þau hafi því háttað sig og lagst upp í rúm. Er hann tók utan um konuna sagðist hann hafa fundið fyrir kynferðislegri spennu á milli þeirra. Eftir það hafi þau afklæðst og haft samfarir. Sagði hann að þau hafi bæði verið í sambandi á þessum tíma og liðið illa eftir atburði næturinnar. Skildist honum á konunni að þau ættu að gleyma atvikinu og láta eins og ekkert hafi í skorist.Þegar konan sagði honum svo frá því hvernig hún teldi að hann hafi brotið á henni hafi hann fengið áfall og til þess að láta henni líða betur hafi hann tjáð henni og vinum þeirra að hann hefði brotið gegn henni umrætt kvöld.Ákvað hún þó að hitta manninn og segja honum frá því hvernig hann hefði brotið af sér. Sagði hún við skýrslutöku að hann hefði viðurkennt fyrir henni að hafa brotið gegn henni. Það sama á að hann að hafa viðurkennt fyrir sameiginlegum vinum þeirra.Framburður hans metinn ótrúverðugurFyrir dómi komu ýmis vitni sem voru í samskiptum við manninn í september 2016, um það leyti sem fundur mannsins og konunnar átti sér stað. Báru þau vitni um að maðurinn hefði viðurkennt að hafa brotið gegn konunni og sagði eitt vitnið meðal annars að maðurinn hafi verið skýr um það að hann hefði nauðgað konunni, það hafi ekki verið fyrr en maðurinn ræddi við lögfræðing að hann fór að draga framburð sinn til baka.Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavík segir að skýringar á því af hverju hann hafi gengist við brotinu þrátt fyrir að telja sig saklausan væru ekki trúverðugar. Honum hafi verið ljóst að hann hafi verið að játa á sig alvarlega sakir, því væri ekki hægt að túlka framburð hans um veigamestu atriði málsins trúverðugan.Framburður konunnar var hins vegar metinn trúverðugur að mati dómsins. Hún hefði alla tíð verið sjálfri sér samkvæm um meginatriði málsins og gefið haldbærar skýringar á því af hverju hún kærði málið ekki strax til lögreglu.Var maðurinn dæmdur í tveggja ára fangelsi auk greiðslu miskabóta, 1,8 milljónir króna, sem og sakarkostnað, 2,5 milljónir króna. Skaðabótakröfu konunnar var vísað frá dómi en sú krafa var vanreifuð og því sjálfkrafa vísað frá eins og segir í dómnum.Dóm Héraðsdóms Reykjavíkur má sjá hér.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Fleiri fréttir Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Sjá meira