Lífið

Í það heilaga á Mallorca

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
James og Sofia eru hjón.
James og Sofia eru hjón. vísir/getty
Söngvarinn James Blunt gekk að eiga Sofiu Wellesley á Mallorca á Spáni á föstudaginn.

Parið lét gefa sig saman hjá sýslumanni í London á Englandi þann 5. september en ákvað að halda almennilegt brúðkaup á Spáni.

James er hvað þekktastur fyrir slagarann You're Beautiful en Sofia er afabarn hertogans af Wellington.

James og Sofia byrjuðu saman árið 2012 og trúlofuðu sig í desember í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×