Sport

Í lífstíðarbann fyrir að ráðast á dómara | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hnefaleikaferli Króatans Vido Loncar er lokið þó hann sé aðeins átján ára gamall, en hann hefur verið úrskurðaður í lífstíðarbann af króatíska hnefaleikasambandinu fyrir að ráðast á dómara.

Þetta ótrúlega atvik kom upp í þungavigtarbardaga Loncar og AlgirdasBaniulis, frá Litháen, á Evrópumóti ungmenna á mánudaginn sem Baniulis vann eftir aðeins nokkrar sekúndur.

Litháinn náði nokkrum góðum höggum um leið og bardaginn fór af stað, og þar sem um ólympíska hnefaleika er að ræða gerði pólski dómarinn MagejaDziurgota hlé á bardaganum og taldi upp á átta þó Króatinn væri standandi.

Dómaranum fannst Loncar ekki í standi til að halda áfram og stöðvaði bardagann sem gerði það að verkum að Baniulis stóð uppi sem sigurvegari á tæknilegu rothöggi.

Króatinn tók þessu ágætlega í fyrstu og rölti rólegur í hornið sitt, en þegar pólski dómarinn kallaði svo á Loncar til að skoða vafningana á höndum hans varð allt vitlaust.

Loncar var ekki sáttur við úrskurð dómarans og kýldi hann af öflu afli í andlitið svo Pólverjinn féll til jarðar. Þar náði Loncar að kýla Dziurgota nokkrum sinnum til viðbótar áður en hann var stöðvaður.

Í frétt á vef Telegraph segir að Loncar hafi verið handtekinn skömmu síðar, en dómarinn var færður á sjúkrahús.

Króatíska hnefaleikasambandið gaf út yfirlýsingu þar sem það baðst innilega afsökunar á hegðun Loncar og lét vita að hann fengi aldrei aftur að stunda íþróttina.

Loncar er enn í haldi lögreglu og verður væntanlega kærður fyrir líkamsárás.

Þetta skuggalega atvik má sjá í myndbandinu hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×