Glamour

Í hverju ertu Miley?

Ritstjórn skrifar
Söngkonan Miley Cyrus vakti vægast sagt mikla athygli þegar hún gegndi hlutverki kynnis á MTV VMA verðlaununum í gær.

Miley mætti á svæðið í silfurlituðu banda-dressi með kristöllum, sérhönnuðu úr smiðju Versace. Eftir það tók hvert annað dressið, eða kannski frekar búningar við, en þeir voru hannaðir af Versace og Jeremy Scott. 

Í þessu tilfelli tala myndirnar sínu máli. Góða skemmtun. 

Bakhluti „kjólsins“ huldi ekki mikið
Uppblásinn bleikur gúmmíkjóll og svíns-slaufa. Það er eitthvað.
Flippaður samfestingur
Sundbolur og silfur kögurjakki
Pils með vara sniði og appelsínugult der. Skotheld blanda.
Glær kjoll með pillum á. Klárlega vinsælasti Halloween búningurinn 2015.
Hver þarf báðar skálmarnar?
Regnbogafáninn er ansi klæðilegur.





×