Tónlist

Í hlutverki ballerínu í nýju myndbandi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Nýtt tónlistarmyndband við lagið Shake It Off með Taylor Swift er komið á netið.

Í myndbandinu bregður Taylor sér til dæmis í hlutverk ballerínu og er lagið ansi hreint poppað.

Taylor gefur út nýja plötu, 1989, 27. október og vísar titillinn í tónlist frá níunda áratug síðustu aldar sem Taylor er afar hrifin af.

Taylor segir þetta vera sína fyrstu, alvöru poppplötu en hún hefur í gegnum tíðina verið tengd við kántrítónlist.

Viðhafnarútgáfa af plötunni verður einnig gefin út en með henni fylgja meðal annars upptökur frá Taylor sjálfri um hvernig lögin urðu til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×