Í guðanna bænum!

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 06. febrúar 2012 20:00
War Horse er byggð á samnefndri barnabók sem varð síðar að leikriti.
War Horse er byggð á samnefndri barnabók sem varð síðar að leikriti.
Haukur Viðar Alfreðsson skrifar:
Bíó. War Horse. Leikstjórn: Steven Spielberg. Leikarar: Jeremy Irvine, Emily Watson, Peter Mullan, David Thewlis, Benedict Cumberbatch, Tom Hiddleston, Eddie Marsan, Toby Kebbell, Niels Arestrup.

Steven Spielberg heldur sig innan þægindarammans í nýjustu kvikmynd sinni War Horse, en hún er byggð á samnefndri barnabók sem varð síðar að leikriti. Ég ímynda mér skemmtilegt barnaleikrit þar sem tvær manneskjur leika titilhlutverkið, sjálfan stríðshestinn, önnur framhlutann og hin þann aftari. Spielberg splæsir þó í alvöru hesta í myndina sína en útilokar um leið alla möguleika hlutverksins á verðlaunatilnefningum, en kvikmyndin hefur þrátt fyrir það fengið margar slíkar.

Það er í raun óskiljanlegt því War Horse er ekki góð kvikmynd. Hún er afskaplega fallega tekin af Janusz Kamiski, tökumanni leikstjórans til margra ára, og vísar myndatakan til skiptis í John Ford og til fjölskyldumynda í Technicolor. Sagan er hins vegar ein stór melódramatísk klisja sem reynir hvað hún getur að framkalla tár á hvarmi áhorfandans og takist henni það ekki ein síns liðs kemur innantóm kvikmyndatónlistin eftir John Williams til aðstoðar, rétt eins og óvinahermaðurinn sem kemur hlaupandi með vírklippur og hjálpar „góða" hermanninum að losa sárþjáðan fákinn úr gaddavírsflækju.

Þetta atriði endurspeglar Spielberg eins og hann gerist allra verstur. Senan á að hreyfa við okkur tilfinningalega vegna þess að allir hjálpa særðu dýri, meira að segja svarnir óvinir með riffla í lúkum, því að í stríði er það jú stríðið sjálft sem er óvinurinn. Hvernig myndi „give me a break" útleggjast á íslensku? Hlægilegast er þó líklega atriðið þar sem aðalhesturinn fórnar sér fyrir þreyttan vin sinn, sem einnig er hestur, og tekur það á sig að draga níðþunga fallbyssu upp fjallshlíð.

Steven Spielberg er þekktasti núlifandi kvikmyndaleikstjóri heims og hans bestu myndir eru sannkallaðar perlur. Af hverju gerir hann ekki merkilegri hluti en þetta? Og hví er honum ekki refsað fyrir syndir sínar? Þvert á móti fær myndin sex tilnefningar til Óskarsverðlauna og fimm til BAFTA. Er þetta falin myndavél? Er Auddi Blö að sprella í okkur?

Niðurstaða: Kvikmyndir fyrir börn eru af hinu góða en barnaleg kvikmyndagerð er það ekki. War Horse er snotur en alveg innantóm.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 24. maí. 2012 22:00

Barsmíðar og bollukinnar

Aðdáendur órakaða ólátabelgsins Jason Statham verða himinlifandi, en realistar ættu að hal...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Í guðanna bænum!