Glamour

Í fyrsta sinn verður transkona andlit L'Oreal

Ritstjórn skrifar
Fyrirsætan Hari Nef varð um helgina fyrsta transkonan til þess að verða andlit snyrtivörumerkisins L'Oreal. Það sem meira er þá var auglýsingin sýnd í auglýsingahléi Golden Globe verðlaunanna þegar margar milljónir manna um allan heim eru að horfa. 

Hari Nef auglýsir True Match farðann frá L'Oreal en aðrar talskonur merkisins eru Blake Lively, Lara Stone sem og Alexina Graham. Hér fyrir neðan er hægt að sjá auglýsinguna sem fór í loftið um helgina og markaði merkileg skil hjá franska snyrtivöruframleiðandanum. 










×