Íslenski boltinn

Í fyrsta sinn má sjá Fannar skamma í Fannar skammar | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Í allan vetur fengu leikmenn Dominos-deildarinnar í körfubolta að kenna á því í liðnum Fannar skammar í Dominos-körfuboltakvöldi.

Þar gerði Fannar Ólafsson, sérfræðingur þáttarins, grín að mistökum leikmanna og hló dátt með sínum víðfræga hlátri.

Lokasyrpan var virkilega skemmtileg þar sem helstu mistök tímabilsins voru tekin saman, en þar fór Fannar á kostum er hann gerði góðlátlegt grín að mönnum og hló sig máttlausan.

Í fyrsta sinn má nú sjá Fannar í mynd vera að skamma og hlægja að mönnum en það má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×