Bílar

Í fyrsta sinn í 54 ár er Volvo ekki mest selda bílgerðin í Svíþjóð

Finnur Thorlacius skrifar
Zlatan Ibrahimovic og Volvo XC70.
Zlatan Ibrahimovic og Volvo XC70.
Svo bar við í fyrra að engin af bílgerðum Volvo var söluhæsti bíll ársins í Svíþjóð, heldur var það Volkswagen Golf. Alls seldust 372.296 bílar í Svíþjóð í fyrra og af þeim voru 22.084 af gerðinni Volkswagen Golf, eða tæp 6%.

Í öðru sæti var Volvo V70/XC70 með 21.321 bíla selda en af þeirri bílgerð hafði selst 28.613 bílar árið áður og því um talvert minnkandi sölu milli ára, eða um 25,5%. Það skal tekið fram að Volvo S90/V90 leystu af hólmi V70/XC70 bílana á síðasta ári og er sala þeirra meðtalin í þessum tölum.

Volvo átti reyndar einnig bílgerðina sem endaði í þriðja sætinu, eða Volvo V60. Samtals er Volvo ennþá með mesta markaðshlutdeild bílframleiðenda með 19,3% heildarmarkaðarins fyrir nýja bíla í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×