Golf

Í fínu lagi með Tiger

Tiger sló í trjárót og meiddi sig mikið eins og sjá má.
Tiger sló í trjárót og meiddi sig mikið eins og sjá má. vísir/getty
Tiger Woods varð fyrir meiðslum á lokahring Masters á dögunum.

Tiger meiddist þá á úlnlið er hann sló fast í jörðina í erfiðri stöðu. Hann hristi það þó af sér og kláraði hringinn.

Umboðsmaður Tiger, Mark Steinberg, segir að það sé í fínu lagi með kylfinginn þó svo eitthvað bein hafi farið úr stað sem hafi þurft að smella aftur á sinn stað.

Fastlega er búist við því að Tiger taki þátt aftur á móti eftir tvær vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×