Fótbolti

Í fínu lagi með Costa

Costa liggur hér sárþjáður á vellinum í kvöld.
Costa liggur hér sárþjáður á vellinum í kvöld. vísir/afp
Stuðningsmenn Atletico Madrid óttuðust mjög um framherjann Diego Costa er hann var borinn sárþjáður af velli í kvöld.

Costa skoraði seinna mark Atletico í 2-0 sigri en fórnaði sér til þess að skora markið.

Hann hafnaði nefnilega á stönginni með látum. Costa fékk stóran skurð fyrir neðan hnéð og emjaði af sársauka.

Atletico gaf í kvöld frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að meiðslin séu ekki alvarleg. Hann sé með skurð sem megi sauma og síðan setja plástur á.

Kappinn ætti því að vera klár í slaginn í næsta leik.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×