Í fangelsi fyrir hættulega líkamsárás gegn unnustu sinni Samúel Karl Ólason skrifar 28. janúar 2016 17:12 Vísir/Getty
Hæstiréttur hefur lengt fangelsisdóm yfir manni sem dæmdur var fyrir að ganga í skrokk á unnustu sinni í sérstaklega hættulegri líkamsárás Hann var dæmdur fyrir að hafa sparkað og slegið í andlit hennar og líkama og slegið hana í höfuðið með kristalkertastjaka. Maðurinn var einnig dæmdur fyrir áfengisakstur. Konan hlaut töluverða áverka. Um var að ræða tvær árásir. Önnur átti að eiga sér stað 22. ágúst 2010 og hin þann 10. febrúar 2013. Konan kærði vegna beggja árásanna í febrúar 2013. Hins vegar fékkst fyrri árásin ekki sönnuð fyrir dómi. Konan fór á sjúkrahús og fékk áverkavottorð, en ekki þótti sannað að unnusti hennar hefði veitt henni þá áverka. Í seinni árásinni voru lögregluþjónar kallaðir að heimili þeirra vegna hávaða. Maðurinn bar fyrir sig sjálfsvörn en lögreglan fann á honum tvo síma sem konan átti og var annar þeirra brotinn. Konan hafði þá reynt að hringja á lögreglu og þótti það að maðurinn hefði stöðvað hana til marks um hann hefði ekki átt hendur sínar að verja fyrir árásum konunnar, eins og það er orðað í dómnum. Ríkissaksóknari áfrýjaði málinu til Hæstaréttar þar sem maðurinn hafði lýst því yfir að hann myndi áfrýja sjálfur. Áður hafði Héraðsdómur Norðurlands Eystra dæmt manninn í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Honum var einnig gert að greiða 220 þúsund krónur í sekt, 633 þúsund krónur í bætur til konunnar og tvö þriðju af 1.860 þúsund króna málsvarnarlaun verjanda síns og fleiri gjöld. Þar að auki var hann sviptur ökurétti í þrjú ár og sex mánuði. Samkvæmt Hæstarétti skal sá dómur vera óraskaður að mestu, en fangelsisrefsing mannsins lengd í tíu mánuði og þar af sjö mánuðir skilorðsbundnir til tveggja ára. Dóm hæstaréttar má sjá hér, sem og dóm Héraðsdóms Norðurlands Eystra.
Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira