Viðskipti innlent

Í breytingunum felst meiri sveigjanleiki í reglum um auglýsingar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ísland mun innleiða nýju tilskipunina þegar hún hefur verið samþykkt innan EES
Ísland mun innleiða nýju tilskipunina þegar hún hefur verið samþykkt innan EES Vísir/Getty
Evrópuþingmenn og aðildarríki Evrópusambandsins náðu í dag óformlegu pólitísku samkomulagi um nýja hljóð- og myndmiðlunartilskipun. Í tilkynningu frá Fjölmiðlanefnd kemur fram að gert er ráð fyrir að kosið verði um nýja tilskipun í september og formlegu samkomulagi verði þá náð.

Á meðal nýjunga í tilskipuninni eru skýrari reglur um lögsöku ríkja, aukin vernd barna og meiri sveigjanleiki í reglum um auglýsingar. 

Aukin vernd barna verður bæði í sjónvarpi og myndmiðlum eftir pöntun. Nýjar reglur ganga meðal annars út á að mynddeilisíður eins og Youtube geri ráðstafanir til að auka vernd barna og tryggi tæknileg úrræði svo unnt verði að tilkynna ólögmætt efni með einföldum hætti. Með breytingunum verða samfélagsmiðlar þar sem myndböndum er deilt eins og Facebook og Youtube gert að grípa til frekar aðgerða gegn efni þar sem hvatt er til „ofbeldis, haturs og hryðjuverka“.

Gildissviðið verður víkkað út að hluta til mynddeilnisíðna og efnisveita sem miðla myndefni. reglurnar gilda einnig um streymissíður, mynddeilisíður sem streyma efni beint á netinu. Sjálfstæði eftirlitsstofnana verður jafnframt styrkt með nýrri tilskipun.

Hlutfall evrópsks efnis í dagskrá verður lækkað úr 50 prósent í 30 prósent í línulegri dagskrá og gilda þær reglur einnig um myndmiðlun eftir pöntun.

Meiri sveigjanleiki vegna auglýsinga

Eins og kom fram á Vísi fyrr í dag leyfa nýju reglurnar Evrópusambandsríkjum að krefja efnisveitur á netinu sem eru ekki staðsettar í landinu en sækja á markað þeirra um framlög til innlendrar dagskrárgerðar. Gætu efnisveitur þurft að fjárfesta beint í innlendu efni eða greiða framlög í kvikmyndasjóði. 

Í breytingunum felst líka meiri sveigjanleiki í reglum um auglýsingar. Nýjar reglur um auglýsingar gera ráð fyrir að 20 prósent reglan um auglýsingahlutfall innan klukkustundar í sjónvarpi falli úr gildi og í staðinn komi 20 prósent regla sem gildir annars vegar á tímabilinu frá klukkan sex að morgni til klukkan sex síðdegis og hins vegar á svokölluðum kjörtíma, sem hefur verið skilgreindur frá klukkan 18 til miðnættis. Auglýsingar á þessu tímabili mega einungis vera 20 prósent af dagskrárefni.

Ísland mun innleiða nýju tilskipunina þegar hún hefur verið samþykkt innan EES, samkvæmt upplýsingum frá Fjölmiðlanefnd.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×