Í Biblíunni er bæði ást og hatur

Fréttablaðið Tíska og hönnun 18. febrúar 2012 10:00
Sólveig Anna Bóasdóttir guðfræðingur segir að ekki sé hægt að afsala sér samvisku og túlkunarfrelsi og vísa blint í Biblíuna.
Sólveig Anna Bóasdóttir guðfræðingur segir að ekki sé hægt að afsala sér samvisku og túlkunarfrelsi og vísa blint í Biblíuna. fréttablaðið/valli
Biblían geymir ýmiss konar boðskap. Þar er að finna kærleik og ást, en einnig refsigleði og hatur. Því hefur verið velt upp hvort sumt þar eigi að skilgreina sem hatursáróður. Kolbeinn Óttarsson Proppé rýnir í trúartextann og samfélagslega skírskotun hans

Um fá rit hefur staðið jafn mikill styr og Biblíuna. Hún er safn trúarrita og eru sum þeirra meira en 2000 ára gömul. Frá upphafi hefur verið deilt um hvað eigi að vera í Biblíunni og stendur sú deila enn. Sem dæmi má nefna að svokallaðar Apokrýfar-bækur Gamla testamentisins voru ekki í íslensku Biblíunni frá 1866 til 1981, en eru þar nú. Það er því ekki eins og Biblían hafi sprottið alsköpuð fram, hún er ritstýrt greinasafn.

Ummæli Snorra Óskarssonar, grunnskólakennara á Akureyri, þess efnis að samkynhneigð væri synd og synd ylli dauða hafa vakið athygli. Snorri var settur í hálfs árs leyfi, en sú ákvörðun er fráleitt óumdeild. Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók málið upp á þingi á þriðjudag. Þar sagði hann ráðstöfunina varða mannréttindi, virðingu fyrir skoðanafrelsi og trúfrelsi á Íslandi.

Þarna heggur Árni í sama knérunn og Snorri sjálfur. Skoðanir hans er að finna í Biblíunni og hvernig er hægt að banna trúuðum manni að vitna í trúarrit sitt?


Ekki siðferðileg viðmið
Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands, segir ekki hægt að taka orð úr Biblíunni og flytja inn i okkar samfélag að óathuguðu máli. Biblían sé mörg þúsund ára gömul og það sem í henni standi sé í ákveðnu félagslegu og menningarlegu samhengi og það verði að hafa í huga. Því sé ekki hægt að nota þau sem siðferðileg viðmið í dag, án gagnrýnnar skoðunar.
„Kristin siðfræði og kristnir siðfræðingar hafa tekið afstöðu gegn mörgu sem talað er um í Biblíunni, s.s. þrælahaldi og dauðarefsingu. Siðfræðingar gera greinarmun á staðhæfingum um boð og bönn, sem finna má, og þeim rökum sem færa má fyrir staðhæfingunum.
Það er ekki ásættanlegt fyrir kristna siðfræði að flytja staðhæfingar úr þúsund ára gömlum ritum inn í samtímann og krefjast þess að samfélagið geri það að viðmiðum gagnrýnislaust. Siðfræðingar sleppa aldrei undan kröfu um að sýna fram á með rökum að boð og bönn Biblíunnar séu góð og gild í samtímanum. Kristin siðfræði er gagnrýnin: hún tekur hvorki bókstafstrú né hefðatrú gilda án nánari skoðunar.“


Hvað er samkynhneigð?
Sólveig spyr líka hvað Snorri eigi við þegar hann talar um samkynhneigð. Orðið homosexuality kom fyrst fram árið 1868 og því segir Sólveig þá spurningu sem Biblían fjallar um ekki vera þá sömu og við hugleiðum í dag, þar sem gengið er út frá því að tvær manneskjur af sama kyni sem elskast séu frjálsar og gefi samþykki sitt. Því sé enginn skaði skeður og engar slæmar afleiðingar fyrir viðkomandi.
„Ef kynlífsathöfn tveggja eða fleiri er samþykkt og sjálfræði er til staðar og hún veldur þeim ekki skaða, þá á enginn utanaðkomandi að skipta sér af því. Biblían þekkir ekkert slíkt og þar er hvergi minnst á það.“


Hreinleikalögin
Orðin sem oftast er vitnað til varðandi kynlíf einstaklinga af sama kyni er að finna í Þriðju Mósebók. „Og leggist maður með karlmanni sem kona væri, þá fremja þeir báðir viðurstyggð. Þeir skulu líflátnir verða, blóðsök hvílir á þeim.“
Þetta er að finna í hreinleikabálki Gamla testamentisins, í svokölluðum hreinleikalögum. Þar eru fleiri brot sem varða líflát; að drýgja hór með konu annars manns, leggjast með konu föður síns, tengdadóttur sinni, að sænga hjá mæðrum og eiga samræði við skepnur. Þá er þar einnig að finna eftirfarandi klausu sem gæti reynst mörgum unglingnum skeinuhætt í dag:
„Hver sá, sem bölvar föður sínum eða móður sinni, skal líflátinn verða. Föður sínum eða móður sinni hefir hann bölvað, blóðsök hvílir á honum.“


Siðfræði eða siðfræði
Sólveig Anna segir að þessi orð verði að skoðast í ljósi þess samfélags sem þau töluðu til. „Það er margvíslegt efni í Biblíunni og hún er ekki ein efnisleg heild. Þetta endurspeglar menningu, samfélög og viðhorf sem eru löngu gengin sér til húðar.
Það er ekki allt til eftirbreytni sem stendur á síðum Biblíunnar. Þar er til að mynda að finna dauðarefsingu sem víðast hefur verið aflögð.
Sólveig segir mjög varhugavert að lifa eingöngu með Biblíuna að leiðarljósi og láta eins og maður þekki ekkert til samfélagsins sem maður býr í. Þekkingu og næmi þurfi til að túlka og flytja það inn í samtímann sem í henni stendur. Þá sé ekki samasemmerki á milli þess sem stendur í Biblíunni í heild og þess sem við köllum kristna siðfræði.
„Kristnir siðfræðingar hafa alltaf túlkað Biblíuna. Þeir hafa lagt til hliðar fjölda boða og banna sem standa í Gamla testamentinu, við hlið þessa banns varðandi mök karlmanna til dæmis. Þeir hafa komist að því að kristnir menn megi borða svínakjöt, á meðan hvorki Gyðingar né múslímar gera svo, og þeir hafa lagt margt annað til hliðar.“


Bókstafstrú slæm
Mannkynið hefur alla tíð vísað til einhvers valds, hvort sem er veraldlegt eða geistlegt. Trúarrit eru gjarnan notuð í þeim tilgangi og á það við um gyðinga, múslima sem og kristna. Þó styðjast ekki öll trúarbrögð við trúarrit, en þau sem það gera eru nefnd bókatrúarbrögð.
Sólveig bendir á að í gegnum söguna hafi verið vísað í Biblíuna til að réttlæta ýmislegt sem hefur verið aflagt. „Allt fram að því að þrælahald var aflagt í Bandaríkjunum á ofanverðri 19. öldinni var túlkun stærstu kirkjudeildanna að stuðningur væri við þrælahald í Biblíunni. Það voru litlu kirkjudeildirnar, mennónítar, kvekarar og baptistar, sem lögðu annan skilning í Biblíuna og sögðu þrælahald ósiðlegt.“
Ýmsir hafa einmitt vitnað til Biblíunnar, meðal annars varðandi samkynhneigða, og sagt sem svo; það er mikilvægt að sýna öllum kærleik en því miður stendur þetta í Biblíunni. Sólveig hefur svar við því.
„Getur nokkur manneskja nokkurn tímann afsalað sér samvisku og túlkunarfrelsi og sagt bara: ég verð að beygja mig undir þetta. Mér finnst nauðsynlegt að líta þannig á að maður sé frjáls á þann hátt að maður sé túlkandi vera sem leggur mat á hlutina.“

Fleiri fréttir - Tíska og hönnun

Tíska og hönnun 22. maí. 2012 17:00

Óvenjuleg dress

Hvort sem það er Jean Paul Gaultier, Commes des Garçon, Jeremy Scott, Issey Miyake eða Thi...  

Meira
Tíska og hönnun 22. maí. 2012 13:30

Scarlett í Dolce&Gabbana

Leikkonan Scarlett Johansson, 27 ára, var mynduð við tökur......  

Meira
Tíska og hönnun 18. maí. 2012 11:45

Veldu réttu sólgleraugun fyrir sumarið

Það er sá tími ársins sem fólk dregur upp sólgleraugun á ný....  

Meira
Tíska og hönnun 16. maí. 2012 13:00

Chanel kynnti nýjungar í Frakklandi

Chanel kynnti undurfagrar nýjungar fyrir næstkomandi haust í Versailles í Frakklandi í gær...  

Meira
Tíska og hönnun 16. maí. 2012 15:00

Hannar tæknileg föt

Fatahönnuðurinn Nicola Formichetti hyggst hanna fatalínu undir eigin nafni. Formichetti va...  

Meira
Tíska og hönnun 15. maí. 2012 17:30

Munstraðir kjólar vinsælir

Leikkonurnar Christina Hendricks, 37 ára, og Sofia Vergara, 39 ára, eru hrifnar af síðum m...  

Meira
Tíska og hönnun 14. maí. 2012 20:43

Stella McCartney leitar jafnvægis

Breski hönnuðurinn Stella McCartney segir hönnun sína ganga út á jafnvægi í ár....  

Meira
Tíska og hönnun 14. maí. 2012 16:00

Stærra og grófara skart með haustinu

Þrátt fyrir að sumarið sé rétt að hefjast birtast nú tískustraumar næsta hausts og vetrar ...  

Meira
Tíska og hönnun 12. maí. 2012 13:00

Ber virðingu fyrir gömlu og góðu

"Við berum mikla virðingu fyrir þjóðbúningnum en við viljum reyna að nútímavæða hann og ge...  

Meira
Tíska og hönnun 11. maí. 2012 10:32

Manolo Blahnik frumsýnir nýja skólínu

Stórstjarna skóiðnaðarins, sjálfur Manolo Blahnik frumsýndi nýja skólínu í tískuborginni M...  

Meira
Tíska og hönnun 11. maí. 2012 18:15

Englar Victoriu Secret sýna nýja undirfatalínu

Fyrirsæturnar Lindsay Ellingson, Doutzen Kroes, og Erin Heatherton stilltu sér upp fyrir u...  

Meira
Tíska og hönnun 10. maí. 2012 11:30

Best og verst klæddu á Met-ballinu

Rauða dreglinum var rúllað út í New York í vikunni er hið árlega galakvöld Metropolitan-sa...  

Meira
Tíska og hönnun 10. maí. 2012 08:07

Funheit lína Fendi

Ef myndirnar eru skoðaðar af haustlínu tískuhússins Fendi má sjá yfirhönnuðinn Karl Lagerf...  

Meira
Tíska og hönnun 08. maí. 2012 12:30

Heidi Klum glæsileg í blárri blúndu

Ofurfyrirsætan Heidi Klum var ein þeirra sem bar af á galakvöldi Metropolitan safnsins í N...  

Meira
Tíska og hönnun 07. maí. 2012 17:30

Stjörnustílistinn Rachel Zoe í SoHo

Stjörnustílistinn Rachel Zoe og eiginmaður hennar Rodger Berman voru á ferðinni í New York...  

Meira
Tíska og hönnun 07. maí. 2012 10:30

Kjólar vikunnar

Stjörnurnar komu víða saman í Hollywood í síðustu viku og að vanda fer pressan yfir þær be...  

Meira
Tíska og hönnun 07. maí. 2012 08:00

Johnson gjaldþrota

Fyrirtæki fatahönnuðarins Betsey Johnson hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum samkvæmt frét...  

Meira
Tíska og hönnun 06. maí. 2012 14:42

Mynduð fyrir Acne

Enn berast fregnir af sigrum fyrirsætunnar Kolfinnu Kristófersdóttur sem er komin á fullt ...  

Meira
Tíska og hönnun 04. maí. 2012 20:00

Þurfti að bíða í hálft ár með að segja frá sigrinum

Birta Ísólfsdóttir, fatahönnuður, bar sigur úr býtum í hönnunarkeppninni Hannað fyrir Ísla...  

Meira
Tíska og hönnun 04. maí. 2012 07:00

Anna Dello Russo hannar fyrir H&M

Ritstjórinn og tískufyrirmyndin Anna Dello Russo er að fara í samstarf við sænsku verslana...  

Meira
Tíska og hönnun 03. maí. 2012 15:30

Dreymdi Lagerfeld

Sjónvarpskonan Alexa Chung vaknaði í gærmorgun eftir undarlegan draum og ákvað að deila in...  

Meira
Tíska og hönnun 03. maí. 2012 12:30

Kristen Stewart valin best klædda kona Bretlands

Tímaritið Glamour Magazine hefur kosið best klæddu konu Bretlands en það er Twilight-stjar...  

Meira
Tíska og hönnun 29. apr. 2012 15:00

Rósótt þema í tískupartýi

Tribeca-kvikmyndahátíðin stendur þessa dagana yfir í New York en margmenni er statt í borg...  

Meira
Tíska og hönnun 29. apr. 2012 11:00

Myndar allt fyrir danska hönnuðinn Henrik Vibskov

"Þetta er mjög gaman og ég er umvafinn jákvæðu og listrænu fólki hérna,“ segir ljósm...  

Meira
Tíska og hönnun 27. apr. 2012 16:45

Fyrstu nemendur Elite Fashion Academy útskrifast

Meðfylgjandi myndir og myndskeið ......  

Meira
Tíska og hönnun 26. apr. 2012 15:13

Hver mun hanna brúðarkjól Angelinu Jolie?

Eins og þekkt er orðið ætla þau Brad Pitt og Angelina Jolie að ganga í það heilaga á næstu...  

Meira
Tíska og hönnun 26. apr. 2012 14:00

Settu punktinn yfir I-ið með litríkri tösku

Litagleðin ætlar engan endi að taka um þessar mundir í fatnaði, skóm, töskum og skarti....  

Meira
Tíska og hönnun 26. apr. 2012 08:00

Vandað vel til verka

Útskriftarsýning fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands var haldin á sumardaginn fyrsta ...  

Meira
Tíska og hönnun 25. apr. 2012 20:36

Litagleðin allsráðandi

Meðfylgjandi má sjá haustlínu Matthew Williamson í ár......  

Meira
Tíska og hönnun 25. apr. 2012 14:00

Jean Paul Gaultier hannar fyrir Diet Coke

Listamaðurinn Carolyn Roper málaði tvær breskar fyrirsætur sem sátu fyrir í glugga verslun...  

Meira
Tíska og hönnun 25. apr. 2012 13:00

Neon litaðir skór heitir í sumar

Það er óhætt að segja að Neon litir séu sjóðandi heitir um þessar mundir....  

Meira
Tíska og hönnun 24. apr. 2012 13:00

Flottar í flatbotna skóm

Sumarið er komið og stjörnurnar eru farnar á ströndina í léttum klæðum og flatbotna skóm....  

Meira
Tíska og hönnun 23. apr. 2012 16:28

Undursamlegt útsýni úr lúxusíbúð

Meðfylgjandi myndir voru teknar í þakíbúð á 31. hæð í háhýsi sem er staðsett á kletti í Ne...  

Meira
Tíska og hönnun 23. apr. 2012 14:15

Naglalakk í öllum regnbogans litum

Naglalökk hafa verið mikið í tísku síðustu misseri eins og sést hefur hjá Hollywood stjörn...  

Meira
Tíska og hönnun 23. apr. 2012 11:00

Fjallað um Kríu í NY Times

Jóhanna Methúsalemsdóttir, skartgripahönnuður, sendi nýverið frá sér nýja línu sem unnin e...  

Meira
Tíska og hönnun 23. apr. 2012 11:00

Fer til New York í sumar

Gyða Katrín Guðnadóttir sigraði Eskimo/Next fyrirsætukeppnina sem haldin var í Hörpu á mið...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 15:00

Handverk í formi málverks

Helga Sigríður Valdemarsdóttir myndlistakona á Akureyri notar útsaumsmunstur kvenna í málv...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 13:00

Stubbur á kodda

Ragnhildur Anna Jónsdóttir vinnur barnaföt undir merkinu Jónsdóttir & co. Nýjasta varan er...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 11:00

Íslenska pönnukökupannan fær andlitslyftingu

Íslenska pönnukökupannan hefur fengið andlitslyftingu í meðförum fimm íslenskra hönnuða og...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 08:00

Ástríða fyrir skarti og þjóðbúningum

Hjónin Guðrún Hildur Rosenkjær og Ásmundur Kristjánsson hafa sérhæft sig í gerð þjóðbúning...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 14:21

Haustlína Gucci einkennist af sjálfstrausti

Frida Giannini hönnuður Gucci lét hafa eftir sér að orðið rómantík hafi verið notað baksvi...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 13:00

Next-stúlkan valin í Hörpunni

Eskimo/Next-fyrirsætukeppnin fór fram í Hörpu á síðasta degi vetrar. Tíu stúlkur tóku þátt...  

Meira
Tíska og hönnun 21. apr. 2012 16:00

Í eina sæng með Mac

Snyrtivöruframleiðandinn Mac mun senda frá sér nýja línu í haust sem unnin er í samstarfi ...  

Meira
Tíska og hönnun 16. apr. 2012 13:45

Dýramynstur heitt í Hollywood

Eins og sjá má í meðfylgjandi myndasafni er dýramynstur heitt í Hollywood......  

Meira
Tíska og hönnun 14. apr. 2012 09:15

Litir og munstur áberandi í sumar

Flaksandi síðbuxur, fallegir blazer-jakkar og munstraðar flíkur eru það sem vorvindarnir m...  

Meira
Tíska og hönnun 13. apr. 2012 13:00

Lína innblásin af spíritisma

Sævar Markús Óskarsson frumsýndi fyrir stuttu brot úr fyrstu fatalínu sinni. Línan er bæði...  

Meira
Tíska og hönnun 12. apr. 2012 07:45

Nýr hönnuður Dior

Raf Simons, fyrrverandi yfirhönnuður hjá tískuhúsinu Jil Sander, er nýr hönnuður hjá Chris...  

Meira
Tíska og hönnun 11. apr. 2012 13:00

Kolfinna í ítalska Vogue

Fyrirsætan Kolfinna Kristófersdóttir kemur fyrir í myndaþætti fyrir ítalska Vogue sem nefn...  

Meira
Tíska og hönnun 05. apr. 2012 14:00

Íslensku fatalínurnar brjálæðislegar og svolítið á mis

Tískuhátíðin RFF fór fram í þriðja sinn helgina sem leið. Umsagnir erlendra blaðamanna haf...  

Meira
Tíska og hönnun 05. apr. 2012 08:00

Handagangur í Hörpu

Fjöldi manns vann baki brotnu baksviðs á Reykjavík Fashion Festival í Hörpu um helgina þar...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Tíska og hönnun / Í Biblíunni er bæði ást og hatur