Fótbolti

Everton áfram í Evrópudeildinni

Lukaku fagnar marki sínu í kvöld.
Lukaku fagnar marki sínu í kvöld. Vísir/Getty
Everton tryggði sér efsta sæti H-riðils Evrópudeildar UEFA og þar með sæti í 32-liða úrslitum keppninnar með 2-0 sigri á Wolfsburg í Þýskalandi.

Krasnodar og Lille gerðu 1-1 jafntefli í sama riðli fyrr í dag en þau úrslit þýddu að Everton var öruggt með sæti sitt í 32-liða úrslitunum.

Stigin þrjú sem liðið sótti til Þýskalands í kvöld þýðir hins vegar að Everton er öruggt með efsta sæti riðilsins en mörk frá Belgunum Romelu Lukaku og Kevin Mirallas tryggðu Everton sigurinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×