Enski boltinn

Kane skaut Spurs áfram með þremur mörkum | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Harry Kane var í miklu stuði þegar Tottenham tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar með 3-0 sigri á Fulham í Lundúnaslag á Craven Cottage.

Kane skoraði öll þrjú mörk Tottenham í leiknum. Þetta var hans fimmta þrenna fyrir félagið.

Kane opnaði markareikninginn á 16. mínútu þegar hann teygði sig í boltann og skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf Christians Eriksen. Daninn lagði einnig upp annað mark Kane sem kom á 51. mínútu.

Kane fullkomnaði svo þrennuna á 73. mínútu. Hann slapp þá í gegn eftir sendingu frá Dele Alli og skoraði af öryggi framhjá Marcus Bettinelli í marki Fulham. Skömmu síðar fékk Kane heiðursskiptingu.

Sigurinn var mikilvægur fyrir Spurs sem var búið að tapa tveimur leikjum í röð fyrir leikinn í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×