Fótbolti

Auðvelt hjá Englandi | Öll úrslit kvöldsins

England, Svíþjóð og Spánn unnu öll leiki sína í undankeppni EM í kvöld. Zlatan sá um vinnuna fyrir Svía og Harry Kane skoraði sögulegt mark fyrir England.

Wayne Rooney var fljótur að koma Englandi yfir er hann skallaði boltann í netið eftir að markvörður Litháa hafði varið skot Danny Welbeck.

Hans 47. mark fyrir England en Bobby Charlton hefur skorað flest (49) og Gary Lineker er með næstur (48). Rooney búinn að skora fimm af síðustu átta mörkum enska liðsins. Þar af síðustu þrjú.

Annað mark Englendinga kom rétt fyrir hlé. Henderson með sendingu fyrir. Danny Welbeck átti slakan skalla sem fór í varnarmann og þaðan í netið. Sjálfsmark eða hvað?

Þriðja markið kom svo er Rooney lagði boltann fyrir á Raheem Sterling og hann skoraði.

Heitasti leikmaðurinn í ensku deildinni, Harry Kane, fékk svo að koma inn á. 80 sekúndum síðar var hann búinn að skora. Lyginni líkast.

Svíar unnu góðan útisigur í Moldavíu. Markalaust í hálfleik en Zlatan Ibrahimovic skoraði ótrúlegt mark í upphafi seinni hálfleiks. Markvörður Moldava sparkaði út, boltinn fór beint í skallann á Zlatan sem náði að stýra boltanum í netið. Hann skoraði svo annað mark og kláraði leikinn.

Gera þurfti hlé á leik Svartfellinga og Rússa eftir að markvörður Rússa, Igor Akinfeev, fékk flugeld í hausinn á fyrstu mínútu. Leikurinn fór aftur í gang hálftíma síðar.

Úrslit:

C-riðill:

Makedónía-Hvíta Rússland  1-2

Slóvakía-Lúxembúrg  3-0

Spánn-Úkraína  1-0

1-0 Alvaro Morata (28.)

Staðan: Slóvakía 15 stig, Spánn 12, Úkraína 9, Hvíta-Rússland 4, Makedónía 3, Lúxembúrg 1.

E-riðill:

England-Litháen  4-0

1-0 Wayne Rooney (7.), 2-0 Danny Welbeck (45.), 3-0 Raheem Sterling (58.)

Slóvenía-San Marínó  6-0

Sviss-Eistland  3-0

Staðan: England 15 stig, Slóvenía 9, Sviss 9, Litháen 6, Eistland 4, San Marínó 1.

G-riðill:

Liechtenstein-Austurríki  0-5

Svartfjallaland-Rússland  Leikurinn flautaður af.

Moldavía-Svíþjóð  0-2

0-1 Zlatan Ibrahimovic (46.), 0-2 Zlatan Ibrahimovic (84.).

Staðan: Austurríki 13 stig, Svíþjóð 9, Rússland 5, Svartfjallaland 5, Liechtenstein 4, Moldavía 1.



2-0 fyrir England. Welbeck eða sjálfsmark? 3-0. Sterling skorar. 4-0. Harry Kane eftir 80 sekúndur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×