Fótbolti

Markalaust í fyrsta leik David Moyes | Alfreð lék síðustu mínúturnar

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
David Moyes klár með spaða fimmu í fyrsta leiknum
David Moyes klár með spaða fimmu í fyrsta leiknum vísir/getty
David Moyes horfði á lið sitt Real Sociedad gera markalaust jafntefli á útivelli gegn Deportivo La Coruna í fyrsta leik sínum við stjórnvölinn í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Alfreð Finnbogason kom ekki inn á sem varamaður fyrr en á 87. mínútu þó lítið gengi upp í sóknarleik liðsins en tölvuert lá á liðinu í seinni hálfleik eftir fjörugan fyrir hálfleik.

Alfreð fékk ekki úr neinu að moða þær fáu mínútur sem hann lék fyrir lið sitt.

Bæði lið eru með tíu stig í 12 leikjum. Sociedad í 14. sæti og LA Coruna sæti neðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×