Enski boltinn

Chelsea ekki í neinum vandræðum með Jóa Berg og félaga í Burnley

Stefán Árni Pálsson skrifar
Chelsea vann mjög þægilegan sigur á nýliðum Burnley, 3-0, á Stamford-Bridge í London í dag. 

Jóhann Berg Guðmundsson byrjaði leikinn á bekknum en var skipt inn á á 57. mínútu leiksins og var þá staðan 2-0 fyrir heimamenn. 

Edin Hazard skoraði fyrsta mark leiksins á níundu mínútu en Willian bætti við öðru rétt fyrir lok fyrri hálfleiks.

Það var síðan Victor Moses sem innsiglaði sigur Chelsea á 89. mínútu en liðið er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×