Enski boltinn

Markalaust hjá Bournemouth og Tottenham

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bournemouth og Tottenham gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Leikurinn var heldur betur bragðdaufur og náði hvorugt liðið að finna taktinn.

Tottenham hefði með sigri komist á toppinn í ensku úrvalsdeildinni en það mistókst og Bournemouth náði í fínt stig gegn Spurs. 

Tottenham í þriðja sæti deildarinnar með 19 stig en Bournemouth í því 9. með tólf stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×