Fótbolti

Meistararnir með sinn fyrsta sigur

Madrid er búið að vinna sinn fyrsta leik í ár.
Madrid er búið að vinna sinn fyrsta leik í ár. Vísir/Getty
Spánarmeistararnir í Atletico Madrid unnu nýliðana í Eibar, 2-1, í kvöld. Atletico hafði gert jafntefli í fyrsta leik sínum í deildinni, en þeir mörðu nýliðana í kvöld.

Miranda kom Madrídarliðinu yfir og næst var röðin komin að Mario Mandzukic. Staðan 2-0 og allt stefndi í þægilegan sigur heimamanna.

Nýliðarnir gáfust ekki upp og Abraham Minero minnkaði muninn á 33. mínútu, en nær komust þeir ekki og lokatölur 2-1.

Eftir leik kvöldsins er Atletico Madrid með fjögur stig, en Eibar er í níunda sæti með þrjú stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×