Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - ÍBV 25-18 | Valur skellti nýkrýndum bikarmeisturum Dagur Sveinn Dagbjartsson á Hlíðarenda skrifar 6. mars 2015 20:30 Geir Guðmundsson. vísir/pjetur
Valsmenn héldu sigurgöngu sinni áfram í Olís-deild karla í handbolta með 7 marka sigri á Íslands- og bikarmeisturum ÍBV, 25-18.Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var í Vodafone-höllinni í kvöld og tók myndirnar sem fylgja umfjölluninni. Það var ljóst frá upphafi að Valsmenn ætluðu að sýna og sanna af hverju þeir eru í efsta sæti deildarinnar. Leikurinn var jafn fyrstu 15-20 mínúturnar en Valsmenn voru þá ávallt skrefi framar. Þegar um 10 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik tóku heimamenn að auka forskot sitt, sex núll vörn Valsmanna með þá Kára Kristján og Orra Frey fyrir miðju fór að smella og fyrir aftan þá var Stephan Nielsen að verja vel. Eyjamenn léku án Magnúsar Stefánsson sem lenti í árekstri fyrr í dag og hlaut við höfuðhögg. Í upphitun gerði höfuðverkur vart við sig og Eyjamenn tóku enga áhættu, Magnús kom ekkert við sögu í leiknum. Valsmenn voru einnig án mikilvægra leikmanna, þeirra Guðmundar Hólmars Helgasonar og Elvars Friðrikssonar. Valsmenn leiddu í hálfleik, 14-11. Valsmenn héldu forskoti sínu í síðari hálfleik. Eyjamenn reyndu hvað þeir gátu en illa gekk að finna leið framhjá Nielsen í markinu. Eyjamenn náðu auk þess sárasjaldan að koma sér í hraðaupphlaupsstöðu, eitthvað sem reynst hefur liðinu drjúgt oft á tíðum í vetur. Fyrir vikið fengu Eyjamenn lítið út úr þeim Grétari Þór Eyþórssyni og Theódóri Sigurbjörnssyni. Valsmenn voru með leikinn í sínum höndum. Undirritaður hafði á tilfinningunni að heimamenn hefðu getað aukið forskot sitt enn meira en þeir gerðu það sem þurfti og fóru að lokum með sjö marka sigur af hólmi, 25.-18. Valsmenn eru enn taplausir á þessu ári, hafa unnið alla fimm leiki sína og tróna á toppi deildarinnar. Fín holning virðist vera á liðinu þar sem margir leikmenn virðast geta tekið á sig ábyrgða stöður. Vörnin var góð og náði oft á tíðum að þvinga Eyjamenn í erfið skot. Fyrir aftan hana var Stephen Nielsen vel vakandi og átti afbragðs leik. Hann varði 24 skot og var af öðrum ólöstuðum maður leiksins.Óskar Bjarni: Höfum neyðst til að búa til breidd "Ég er fyrst og fremst ánægðastur með að sigra. Við lékum án tveggja manna sem hafa leikið stórt hlutverk hjá okkur. Þeir eru báðir góðir sóknarmenn og góðir varnarmenn og það er gríðarlega sterkt að vinna án þeirra. Mjög gott upp á breiddina. Stephan var frábær í markinu," sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, aðspurður um það hvað hann væri ánægðastur með. "Sóknin var að spila vel einnig og við erum að gera fáa tæknifeila. Við vorum kannski ekki að sækja nóg á þá í seinni hálfleik. Ég vil óska öllum Eyjamönnum til hamingju með bikarinn. Það er alltaf erfitt að koma í leik eftir bikar en þetta var okkar leikur í dag," bætti Óskar við. "Við erum mjög ánægðir. Þegar það vantar menn, þá þvingast maður kannski til að búa til breidd og það gengur vel. Við erum að fara á mjög erfiðan útileik á sunnudaginn. Mér finnst Akureyri vera á uppleið og er með mjög gott lið," sagði Óskar að lokum en Valur mætir Akureyri í næstu umferð.Stephan Nielsen: Markmaður er aldrei betri en vörnin sín Markvörður Stephan Nielsen var maður leiksins. Hann var að vonum kátur í leikslok og hrósaði varnarmönnum sínum fyrir góðan leik. "Við byrjuðum ekki nógu vel, vorum lengi í gang. En við fórum í gang í seinni hálfleik, sérstaklega vörnin. Það er mjög erfitt að spila á móti okkur þegar við spilum góða vörn. Markmaður er aldrei betri en vörnin sín og öfugt. Mér fannst það koma vel í ljós hjá okkur. Vörnin var að vinna góða vinnu og gerði mína vinnu mjög einfalda," sagði Nielsen. Valur tapaði í erfiðum leik gegn FH í undanúrslitum bikarsins, í leik sem flestir bjuggust við að Valur myndi vinna. Nielsen var ánægður með að sitt lið hafi náð að rífa sig upp eftir þann leik. "Mér finnst vera góður karakter í liðinu. Vonandi heldur það áfram. Sterkt að koma tilbaka og vinna ÍBV. Það er gaman að sjá að við getum þetta. Vonandi heldur þetta áfram. Það er langur vegur framundan. Það eru sex leikir eftir í deildinni," sagði Nielsen að lokum.Gunnar Magnússon: Náðum ekki að refsa þeim með hraðaupphlaupum "Ég var ánægður með fyrstu 20 mínúturnar en það sem okkur vantaði var hraðaupphlaup. Ég var ánægður með vörnina og Kolli var að verja vel í lokinn. En við náðum ekki að refsa þeim með hraðaupphlaupum og auðveldum mörkum. Og svo verð ég að gefa Nielsen í markinu hrós, hann varði rosalega vel. Tók víti og dauðafæri og þá var þetta erfitt fyrir okkur," sagði Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV, eftir leikinn. Gunnar var ekki á því að bikarúrslitaleikurinn hafi setið í sínum mönnum. "Mér fannst strákarnir spila vel. Við vorum að spila okkur í færi og náðum að láta flest ganga upp sem við lögðum upp með. Við þurfum bara að klára þessi færi. Við tókum sénsa undir lokinn og misstum þá þ.a.l. aðeins lengra fram úr okkur." Magnús Stefánsson, leikmaður ÍBV, lenti í árekstri í hádeginu í dag og lék ekkert með Eyjamönnum. "Hann fékk höfuðhögg og fann fyrir því í upphitun. Við tókum enga áhættu með það," sagði Gunnar. Eyjamenn hafa aðeins unnið einn leik af fjórum í deildinni á þessu ári. Gunnar sagði að nú yrði Eyjaliðið að einbeita sér að deildinni, bikarævintýrið væri búið. "Nú er bara ný áskorun fyrir okkur. Við ætlum að bæta okkur jafnt og þétt í mars og vera í topp standi í apríl," sagði Gunnar að lokum.
Olís-deild karla Mest lesið Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Handbolti „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Íslenski boltinn „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ Íslenski boltinn Ingvar verður ekki áfram: „Haukar ætla sér alltaf meira en þetta“ Sport Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Enski boltinn Lærisveinninn laut í lægra haldi Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið Zwickau sogast niður í fallbaráttu Orri Freyr fór mikinn í stórsigri Sporting Fredericia missti toppsætið til Skjern Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar Sjá meira