Fótbolti

Tottenham áfram eftir skrautlegan leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þessi áhorfandi ruddist inn á völlinn til að taka "selfie“-mynd af sér með Kyle Naughton.
Þessi áhorfandi ruddist inn á völlinn til að taka "selfie“-mynd af sér með Kyle Naughton. vísir/getty
Tottenham er komið áfram í 32-liða úrslit Evrópudeildar UEFA eftir 1-0 sigur á Partizan Belgrad á White Hart Lane í kvöld.

Benjamin Stambouli skoraði eina mark leiksins snemma í síðari hálfleik þegar hann fylgdi eftir skoti Roberto Soldado sem hafnaði í stönginni.

Stöðva þurfti leikinn í tíu mínútur undir lok fyrri hálfleiks eftir að þrír áhorfendur ruddust inn á völlinn. Einn þeirra tók mynd af sér með Kyle Naughton, leikmanni Tottenham, á símann sinn.

Hætt var við því að flauta þyrfti leikinn af vegna þessa en gæslan hélt á heimavelli Tottenham í síðari hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×