Enski boltinn

Markalaust jafntefli hjá Tottenham og Everton

Stefán Árni Pálsson skrifar
Úr leiknum í dag.
Úr leiknum í dag. vísir/getty
Tottenham og Everton gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Bæði lið fengu sín tækifæri en náðu ekki að nýta þau. Lið Tottenham fékk sérstaklega hættuleg færi og mun Harry Kane sennilega eiga erfitt með að sofna í kvöld. Það sama má segja um Ryan Mason hjá Spurs.

Niðurstaðan því 0-0 jafntefli í nokkuð bragðdaufum leik. Tottenham er aðeins með þrjú stig eftir fjórar umferðir og er liðið í 15. sæti deildarinnar. Everton er með fimm í níunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×