Enski boltinn

Gylfi og félagar skoruðu ekki en náðu í stig | Sjáðu stangarskot Gylfa

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea gerðu markalaust jafntefli við Watford á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. 

Gylfi var í byrjunarliðinu og lék allan leikinn fyrir heimamenn. Gylfi fékk gult spjald í upphafi síðari hálfleiksins. Hann átti fínan leik og var í raun óheppinn að skora ekki, þar sem skot hans fór í stöngina.

Það gengur lítið upp hjá Swansea á þessu tímabili en liðið er í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með fimm stig en Watford í því níunda með 12 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×