Enski boltinn

Wanyama hetja Southamton | Sjáðu mörkin

Victor Wanyama var hetja Southampton gegn Swansea þegar liðin mættust á Liberty-leikvangnum í Wales í dag.

Wayne Routledge klúðraði úrvals færi fyrir Swansea í fyrri hálfleik, en heimamenn léku einum færri frá 39. mínútu þegar Wilfried Bony fékk sitt annað gult spjald fyrir glórulausa tæklingu.

Varamaðurinn Wanyama tryggði Southampton svo sigurinn með laglegu skoti þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum.

Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn fyrir Swansea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×