Enski boltinn

Manchester City vann auðveldan sigur á Gylfa og félögum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Manchester City heldur áfram sigurgöngu sinni í ensku úrvalsdeildinni en liðið lagði Gylfa Þór Sigurðsson og félaga í Swansea, 3-1 á útivelli í dag. 

Staðan í hálfleik var 1-1 í hálfleik og leikurinn galopinn. City gerði tvö mörk í þeim síðari og niðurstaðan þægilegur sigur. 

Sergio Aguero gerði tvö mörk fyrir City og Sterling skoraði eitt. Llorente skoraði eina mark Swansea í leiknum en Gylfi Þór lagði það markið upp. 

Manchester City er enn með fullt hús stiga, 18 stig, í efsta sæti deildarinnar. 

Swansea er í því 16. með fjögur stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×