Fótbolti

Sjáðu stemmninguna í Nice | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vísir var með beina útsendingu frá Nice þar sem leikur Íslands og Englands í 16-liða úrslitum á EM 2016 fer fram.

Eiríkur Stefán Ásgeirsson og Björn G. Sigurðsson skelltu sér á ströndina í Nice og tóku púlsinn á stuðningsmönnum Íslands sem voru í góðum gír enda sannkallaður stórleikur framundan.

Búist er við því að rúmlega 3000 Íslendingar leggi leið sína á Riviera-völlinn í Nice í kvöld. Völlurinn tekur alls 35.000 manns í sæti en hann var opnaður fyrir þremur árum.

Sigurvegarinn í leiknum í kvöld mætir Frakklandi í 8-liða úrslitum á Stade de France á sunnudaginn.

Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×