Enski boltinn

Arsenal lagði lánlaust lið Sunderland | Sjáið mörkin

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Alexis Sanchez fagnar með félögum sínum
Alexis Sanchez fagnar með félögum sínum vísir/getty
Alexis Sanchez tryggði Arsenal stigin þrjú þegar liðið lagði Sunderland 2-0 á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Sanchez skoraði fyrra markið á 30. mínútu eftir skelfilega mistök Wes Brown í vörn Sunderland og var staðan 1-0 í hálfleik.

Sunderland tapaði 8-0 um síðustu helgi en náði að hindra það að flóðgáttirnar myndu opnast á ný þó Sanchez hafi náð að skora aftur í uppbótartíma.

Arsenal lyfti sér upp í 5. sæti með sigrinum en liðið er með 14 stig. Sunderland er með 8 stig í 17. sæti.

Alexis Sanchez kemur Arsenal yfir: Alexis Sanchez skorar aftur:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×