Enski boltinn

Southampton náði stigi gegn Chelsea | Sjáðu mörkin

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Hazard sáttur eftir að jafna metin
Hazard sáttur eftir að jafna metin vísir/getty
Southampton og Chelsea gerðu 1-1 jafntefli á St. Mary‘s leikvanginum í Southampton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Sadio Mané kom Southampton yfir á 17. mínútu eftir sendingu Dusan Tadic.

Eden Hazard náði að jafna metin í uppbótartíma fyrri hálfleiks með glæsilegu marki.

Þrátt fyrir þunga sókn Chelsea í seinni hálfleik var ekki meira skorað og sættust liðin á sitt stigið hvort í lokin.

Chelsea er þó sem fyrr á toppi deildarinnar en liðið er með 46 stig þegar deildin er hálfnuð. Southampton er í fjórða sæti með 33 stig.

Mané kemur Southampton yfir: Hazard jafnar metin:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×