Fótbolti

Real tapaði mikilvægum stigum í toppbaráttunni | Sjáðu mörkin

Real Madrid tapaði mikilvægum stigum í toppbaráttunni á Spáni þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Villareal á heimavelli.

Staðan var markalaus í hálfleik, en gestirnir frá Villareal fengu ívið betri færi. Caravajal bjargaði meðal annars á línu og fleira.

Cristiano Ronaldo kom Real Madrid yfir úr vítaspyrnu á 62. mínútu leiksins, en Gerard Moreno jafnaði metin tólf mínútum síðar með laglegu skoti.

Lokatölur urðu 1-1, en Madrídingar gerðu tilkall til þess að fá vítaspyrnu undir lok leiks. Real er á toppnum með tveggja stiga forskot á Barcelona, en Villareal er í sjötta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×