Fótbolti

Real Madrid valtaði yfir Real Betis - Sjáðu ótrúleg mörk frá James Rodriguez

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bale fagnar marki sínu í kvöld.
Bale fagnar marki sínu í kvöld. vísir/getty
Real Madrid vann í kvöld sinn fyrsta sigur í spænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili þegar liðið bar sigur úr býtum, 5-0, gegn Real Betis á Bernabeu í kvöld.

Gareth Bale byrjaði leikinn með látum og skallaði boltann í netið eftir rúmlega eina mínútu. James Rodriguez. Staðan var 2-0 í hálfleik en liðið byrjaði síðari hálfleikinn rétt eins og þann fyrri þegar Karim Benzema setti boltann í netið í byrjun hálfleiksins.

James Rodriguez gerði síðan annað stórkostlegt mark nokkrum andartökum eftir markið frá Benzema þegar hann skoraði með bakfallsspyrnu inni í miðjum vítateig Real Betis.

Tuttugu mínútum fyrir leikslok fékk Real Betis dæmda vítaspyrnu en Ruben Castro Martin misnotaði hana.

Rétt fyrir lok leiksins skoraði Gareth Bale flott mark með skoti fyrir utan vítateig. 

Niðurstaðan því auðveldur sigur heimamanna sem virðast vera komnir í gang í spænsku deildinni og komnir með fjögur stig. 

Bale kemur Real Madrid í 1-0 á 2. mínútu





James Rodriguez með rosalegt mark fyrir Real Madrid - 2-0



Karim Benzema kemur Real Madrid í 3-0



Draumamark James Rodriguez



Gareth Bale skorar fimmta mark leiksins






Fleiri fréttir

Sjá meira


×