Fótbolti

Markalaust hjá Tottenham í Serbíu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Harry Kane í baráttunni í Belgrad.
Harry Kane í baráttunni í Belgrad. Vísir/Getty
Tottenham gerði markalaust jafntefli við serbneska liðið Partizan Belgrad í fyrsta leik liðanna í C-riðli Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í kvöld.

Þessi lið eru í riðli með Besiktas frá Tyrklandi og Tripolis frá Grikklandi sem áttust við í kvöld og skildu þau jöfn, 1-1.

Ekki besta byrjunin hjá Tottenham en fínt stig á erfiðum útivelli fyrir framan fjölda áhorfenda sem létu vel í sér heyra í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×