Enski boltinn

City í engum vandræðum með Norwich

Sergio Agüero hefur verið heitur í bikarnum að undanförnu.
Sergio Agüero hefur verið heitur í bikarnum að undanförnu. Vísir/Getty
Manchester City átti í engum vandræðum með að tryggja sér farseðilinn í fjórðu umferð enska bikarsins, en þeir unnu 3-0 útisigur á Norwich City.

Sergio Aguero kom City yfir með sínu fimmta marki í síðustu fimm ensku bikarleikjum og Kelechi Iheanacho tvöfaldaði forystuna fyrir hlé.

Belginn Kevin de Bruyne kom svo City í 3-0 tólf mínútum fyrir leikslok og þannig urðu lokatölur, en City stillti upp sterku liði.

City því komið í 32-liða úrslitin, en Norwich er úr leik og getur því einbeitt sér að ensku úrvalsdeildinni þar sem þeir berjast fyrir lífi sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×