Enski boltinn

City náði aðeins í stig gegn Southampton | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Manchester City og Southampton gerðu 1-1 jafntefli á Etihad-vellinum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Nathan Redmond gerði fyrsta mark leiksins á 27. mínútu eftir slæm varnarmistök hjá John Stones. Stones skoraði síðan mark í næstu sókn en það var dæmt af vegna rangstöðu. Staðan var 1-1 í hálfleik en það tók heimamenn aðeins tíu mínútur í þeim síðari að jafna metin.

Þar var að verki Kelechi Iheanacho og skoraði hann fínt mark. Manchester var mun sterkari aðilinn út leikinn en liðið náði ekki að koma boltanum í netið og niðurstaðan því jafntefli.

City er aftur komið á topp deildarinnar og er liðið með 20 stig, jafn mörg stig og Arsenal og Liverpool. Southampton er í 8. sætinu með 13 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×