Enski boltinn

Jafnt í toppslagnum í Manchester | Sjáðu mörkin

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Manchester City og Tottenham skildu jöfn, 2-2, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Etihad leikvanginum í Manchester í kvöld.

Eftir markalausan fyrri hálfleik skoruðu heimamenn tvö mörk á fyrstu níu mínútum seinni hálfleiks. Fyrst Leroy Sané og svo Kevin De Bruyne.

Aðeins fjórum mínútum síðar minnkaði Dele Alli muninn fyrir Tottenham. Þrettán mínútum fyrir leikslok jafnaði Heung-Min Son metin og tryggði Tottenham mikilvægt stig í toppbaráttunni.

Tottenham er í öðru sæti deildarinnar með 46 stig en City í fimmta sæti með 43 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×