Liverpool flaug inn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Can er búinn að skora tvö mörk í leik í fyrsta sinn á ferlinum.
Can er búinn að skora tvö mörk í leik í fyrsta sinn á ferlinum. vísir/getty
Fimm lið tryggðu sig inn í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu og Liverpool er þar á meðal.

Það tók Liverpool ekki nema 20 mínútur að ganga frá Hoffenheim. Þá skoraði liðið þrjú mörk og gekk frá einvíginu. Lokatölur 4-2.

Emre Can skoraði tvö mörk í fyrsta sinn á ferlinum og þeir Mohamed Salah og Roberto Firmino komust einnig á blað. Marc Uth og Sandro Wagner skoruðu mörk Hoffenheim.

Úrslit (samanlagt):

FCK - Qarabag 2-1 (2-2 Qarabag áfram á útivallarmarki)

Slavia Prag - APOEL 0-0 (0-2)

CSKA Moskva - Young Boys 2-0 (3-0)

Liverpool - Hoffenheim  4-2 (6-3)

FCSB - Sporting 1-5 (1-5)

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira