Enski boltinn

Henderson og Sturridge afgreiddu nýliðana | Sjáðu mörkin

Jordan Henderson fagnar glæsilegu marki sínu.
Jordan Henderson fagnar glæsilegu marki sínu. vísir/getty
Liverpool er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 51 stig eftir öruggan 2-0 sigur á nýliðum Burnley í kvöld.

Jordan Henderson heldur áfram að spila eins og engill, en hann skoraði fyrra mark leiksins með þrumuskoti í fyrri hálfleik. Frábært mark hjá miðjumanninum.

Það er ekki amalegt fyrir Liverpool-menn að fá Daniel Sturridge aftur í gang og hann tvöfaldaði forskot heimamanna með skallamarki fimm mínútum fyrir leikslok.

Liverpool er aðeins tveimur stigum frá Meistaradeildarsæti, en það hefur ekki enn tapað leik á árinu 2015 og er á góðri siglinu.

Jordan Henderson kemur Liverpool í 1-0: Daniel Sturridge kemur Liverpool í 2-0:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×