Fótbolti

Quaresma sló Króata kalda | Sjáðu markið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Quaresma og Nani fagna sigurmarki þess fyrrnefnda.
Quaresma og Nani fagna sigurmarki þess fyrrnefnda. vísir/epa
Ricardo Quaresma tryggði Portúgal sæti í 8-liða úrslitum á EM 2016 þegar hann skoraði eina mark leiksins gegn Króatíu í Lens í kvöld.

Leikurinn var nánast tíðindalaus en hvorugt liðið átti skot á markið í venjulegum leiktíma. Þetta er í fyrsta sinn í sögu EM sem það gerist.

Króatar voru sterkari aðilinn í framlengingunni og miðvörðurinn Domagoj Vida fékk dauðafæri á 113. mínútu en skallaði yfir.

Þremur mínútum síðar átti Ivan Perisic skalla í stöng. Portúgal brunaði því næst í sókn, Renato Sanches bar boltann upp og fann Nani sem átti frábæra sendingu á Cristiano Ronaldo.

Danijel Subasic varði frá Ronaldo en frákastið endaði hjá Quaresma sem skallaði boltann í opið markið. Þetta voru einu tvö skotin á markið í öllum leiknum.

Vida átti ágætis skot framhjá undir lokin en allt kom fyrir ekki og Portúgalar fögnuðu sigri og sæti í 8-liða úrslitum þar sem þeir mæta Pólverjum.

Quaresma skorar sigurmarkið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×