Fótbolti

Barcelona heldur pressunni á Real áfram

Börsungar fagna.
Börsungar fagna. Vísir/Getty
Barcelona átti ekki í miklum vandræðum með Granada í spænska boltanum í dag. Með sigrinum setur Barcelona pressu á Real Madrid.

Ivan Rakitic kom Barcelona yfir og Luis Suarez bætti við öðru marki stuttu eftir hlé. Fran Rico minnkaði muninn úr víti fyrir Granada.

Argentíski snillingurinn Lionel Messi gerði svo út um leikinn eftir 70. mínútur þegar hann skoraði þriðja mark Barcelona.

Barcelona er stigi á eftir Real Madrid, en Real Madrid á leik til góða á morgun gegn Villareal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×