Fótbolti

Þjóðverjum urðu á engin mistök | Sjáðu mörkin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Reus skorar fyrsta mark leiksins.
Reus skorar fyrsta mark leiksins. vísir/getty
Heimsmeistararnir í Þýskalandi lentu í litlum sem engum vandræðum í Georgíu, en Þýskaland sigraði heimamenn með tveimur mörkum gegn engu.

Marco Reus kom Þýskalandi yfir á 39. mínútu og fimm mínútum síðar tvöfaldaði Thomas Müller forystuna. Staðan var 2-0 í hálfleik.

Síðari hálfleikur var heldur rólegur og lítið sem ekkert gerðist. Þjóðverjarnir eru í öðru sæti eftir sigurinn, en Pólland, Þýskaland og Skotland eru öll með tíu stig.

Geogría er með þrjú stig í fimmta sæti, en þeir hafa unnið einn leik af fimm.

0-1 Marco Reus: 0-2 Thomas:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×