Íslenski boltinn

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: FH 2 - Þróttur R. 0 | Þægilegur sigur FH á botnliði Þróttar

Ingvar Haraldsson í Kaplakrika skrifar
FH-ingar fagna marki.
FH-ingar fagna marki. Vísir/Stefán
FH vann Þrótt 2-0 í Kaplakrika í fremur auðveldum leik fyrir heimaliðið. FH-ingar réðu lögum og lofum frá fyrstu mínútu. Sóknir Þróttar voru fáar og stuttar enda töpuðu þeir boltanum oft allt of auðveldlega.

Þórarinn Ingi kom FH yfir snemma í fyrri hálfleik. Steve Lennon bæti svo við öðru marki eftir 15 mínútna leik í síðar hálfleik eftir að Trausti Sigurbjörnsson markvörður Þróttar missti fyrirgjöf sem hann ætlaði að grípa.

FH heldur því toppsætinu en Þróttur er enn neðsta lið deildarinnar og þarf að fara að fá stig eigi liðið ekki að falla.

Af hverju vann FH?


FH var bara miklu betra liðið í leiknum og tókst að koma til baka eftir vonbrigðin í Meistaradeildinni í miðri viku. Héldu boltanum vel sköpuðu sér fjölda færa og sigurinn hefði geta verið enn stærri. Munurinn á efsta og neðsta liði deildarinnar skein í gegn í dag.



Hvað gekk vel?


FH liðinu gekk vel að halda boltanum og láta hann ganga. Vörn var örugg í öllum sínum aðgerðum og samstarf Bergsveins og Kassim í vörninni heldur áfram að blómstra enda fékk Þróttur ekki færi svo heita getur.

Serwy og Þórarinn Ingi voru öflugir á köntunum og sköpuðu usla með hverri fyrirgjöfinni á fætur annarri. Atli Viðar og Lennon voru líka sífellt hættulegir inn í teignum. 


Hvað gekk illa?

Þrótti tókst sjaldan að gefa meira en eina til tvær sendingar áður en þeir sendu hann í fæturna á leikmanni FH, oft á mjög hættulegum stöðum. Þrótti gekk því afar illa að komast yfir miðju, hvað þá að skapa sér færi.

Trausti Sigurbjörnsson markvörður Þróttar gerði hrikaleg mistök í öðru marki FH þó hann hafi oft varið vel í leiknum og komið í veg fyrir að sigurinn yrði enn stærri.

Það er enn áhyggjuefni hjá FH mörk liðið skorar fá mörk. Liðið hefði hæglega geta skorað tvö til þrjú mörk í viðbót í dag. FH hefur aðeins einu sinni í deildinni í sumar skorað meira en tvö mörk en það var í fyrstu umferðinni á móti Þrótti.

 Það er bjargast þó á meðan liðið heldur hreinu.

Hvað gerist næst?

FH fer til Vestmannaeyja á fimmtudaginn og hitar upp fyrir húkkaraballið með því að spila í undanúrslitum bikarsins gegn ÍBV.

Þróttur situr enn límdur við botninn og á mjög erfiðan leik á KR-vellinum á miðvikudaginn eftir verslunarmannahelgi. Eftir það koma leikir á móti Stjörnunni, Breiðablik og Val. Níðþungt prógramm fram undan þar sem stig þurfa að vinnast eigi liðið að eiga einhverja von um að bjarga sér.

Heimir: Von á gámi fyrir 31. júlí

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, á von á því að hans liði bæti við sig leikmönnum áður en félagaskiptaglugginn lokar um næstu mánaðamót. „Það kemur örugglega gámur fyrir 31. júlí.“ Lið hans fór með 2-0 sigur af hólmi gegn Þrótti í Kaplakrika í kvöld.

Hann vill lítið segja um hvaða stöður á vellinum hann vilji styrkja. „Það er fullt af stöðum en ekkert sem ég get gefið upp hér og nú.”

Heimir telur sitt lið þó ekki dapurt þó til þurfi heilan gám af nýjum leikmönnum. „Maður aldrei hvað það eru margir leikmenn í gámnum,“ segir þjálfarinn léttur.

Þá var þjálfarinn ánægður með spilamennsku sinna manna gegn Þrótti. „Við héldum boltanum vel innan liðsins og sköpuðum okkur góð marktækifæri og skoruðum tvö mörk. Þau hefðu mátt vera fleiri og sanngjarn sigur.“

Það er ekki áhyggjuefni að mati Heimis hve fá mörk liðið sé að skora. „Það kemur, tvö núll er fínn sigur og við höldum markinu hreinu. Það kemur þegar líður á mótið.

Hann segir liðið hafa tekist vel á við vonbrigðin eftir að hafa dottið úr leik gegn Dundalk í Meistaradeildinni í vikunni. „Við töluðum um það eftir leikinn að það væri búið og við yrðum bara að halda áfram.“

Greg Ryder: Verð að vera bjartsýnn á að bjarga liðinu

Greg Ryder þjálfari Þróttar segir liðinu hafa gengið þokkalega að halda skipulagi varnarlega, hins vegar hafi liðinu gengið illa að halda boltanum. Of margir leikmenn hafi átt dapran dag sóknarlega til þess að liðið fengi eitthvað út úr leiknum.

Þá segist hann verða að vera bjartsýnn á að liðinu takist að halda sér í Pepsi-deildinni. „Við höfum verið gagnrýndir fyrir að fá á okkur svo mörg mörk. Í síðustu leikjum höfum við verið betri varnarlega en það er nauðsynlegt að skora mörk.“

Þróttur hefur bætti við sig nokkrum nýjum leikmönnum í félagaskiptaglugganum. Greg segir þá koma vel inn í hópinn. „Þeir hafa gefið okkur eitthvað aukalega svo ég er ánægður með þá.“

Hallur Hallsson: Verðum að geta spilað boltanum á milli okkar

Hallur Hallsson, fyrirliði Þróttar tók undir með þjálfara sínum að ekki hafi gengið nógu vel að halda í boltann. „Ef við ætlum að gera einhverja hluti í þessari deild verðum við að geta spilað boltanum á milli okkar.“

Hallur segir að sínum mönnum hafi gengið ágætlega varnarlega gegn FH. Þetta voru mikið fyrirgjafir sem við vorum að ráða ágætlega við.“

Hins vegar verði sóknarleikurinn og markaskorunin að batna eigi liðið að eiga möguleika á að bjarga sér frá falli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×