Enski boltinn

Varamaðurinn Fellaini skúrkurinn á gamla heimavellinum | Sjáðu mörkin

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Varamaðurinn Marouane Fellaini gaf Everton vítaspyrnu á lokamínútum leiksins í 1-1 jafntefli gegn Everton í dag en hann var aðeins nýkominn inná sem varamaður.

Skógarferð Maarten Stekelenburg í fyrri hálfleik sem Zlatan Ibrahimovic nýtti sér virtist ætla að ráða úrslitum en Zlatan lyfti þá boltanum yfir Stekelenburg af löngu færi í autt netið.

Fellaini kom inná sem varamaður á 85. mínútu en aðeins tveimur mínútum síðar braut hann á Idrissa Gueye innan vítateigsins og vítaspyrna dæmd.

Bakvörðurinn Leighton Baines steig á punktinn og jafnaði metin fyrir Everton en Baines fékk sjálfur færi til að stela sigrinum stuttu síðar en De Gea varði vel frá honum.

Liðin skildu að lokum jöfn en þetta var fjórða jafntefli Manchester United í síðustu fimm leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×