Enski boltinn

Arsenal náði stigi á Goodison Park

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Naismith skorar seinna mark Everton
Naismith skorar seinna mark Everton Vísir/Getty
Everton og Arsenal gerðu 2-2 jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Goodison Park í Liverpool. Everton var 2-0 yfir í hálfleik.

Seamus Coleman kom Everton yfir með föstum skalla á 19. mínútu. Steven Naismith tvöfaldaði forystu Everton á síðustu mínútu fyrri hálfleiks eftir sendingu frá Lukaku en markið hefði aldrei átt að standa vegna rangstöðu.

Allt stefndi í öruggan sigur Everton þar til Aaron Ramsey minnkaði muninn sjö mínútum fyrir leikslok. Hófst þá stórsókn Arsenal sem lauk með því að Frakkinn Oliver Giroud jafnaði metinn á 90. mínútu.

Everton varð því að sætta sig við annað jafnteflið sitt í jafn mörgum leikjum í deildinni. Arsenal er með fjögur stig eftir tvær umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×