Fótbolti

MSN skoruðu allir í auðveldum sigri Barcelona | Sjáðu mörkin

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Barcelona lagði Eibar 4-0 á útivelli spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Denis Suarez braut ísinn fyrir Barcelona á 31. mínútu með góðu skoti rétt utan teigs og staðan í hálfleik 1-0.

Lionel Messi komst á blað strax á fimmtu mínútu seinni hálfleiks eftir sendingu Luis Suarez. Luis Suarez skoraði sjálfur þriðja markið á 68. mínútu.

Á annarri mínútu uppbótartíma var svo komið að Neymar að skora til að ítreka mikla yfirburði Barcelona í leiknum.

Barcelona er í þriðja sæti deildarinnar með 41 stig, tveimur stigum minna en Real Madrid sem á þó leik til góða. Eibar er í 10. sæti með 26 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×