Handbolti

Umfjöllun: Danmörk - Spánn 24-25 | Cañellas hetja Spánverja gegn Dönum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins.
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins. Vísir/Eva Björk
Joan Cañellas var hetja Spánverja þegar þeir slógu Dani út í 8-liða úrslitum á HM í Katar í Lusail Sports Arena í kvöld. Lokatölur 24-25, Spáni í vil.

Staðan var jöfn þegar lokamínútan gekk í garð. Valero Rivera kom Spánverjum yfir, 23-24, með sínu tíunda marki í leiknum. Danir brunuðu í sókn og Mads Mensah Larsen jafnaði metin með góðu skoti.

Manolo Cadenas, þjálfari Spánar, tók þá leikhlé þegar 19 sekúndur voru eftir. Heimsmeistararnir stilltu upp í sókn sem lauk með því að Cañellas skoraði sigurmarkið, tveimur sekúndum fyrir leikslok. Spánverjar fögnuðu vel og innilega en þeirra bíður leikur gegn Evrópumeisturum Frakka í undanúrslitum.

Leikurinn í kvöld var jafn og spennandi frá fyrstu mínútu og aldrei munaði meira en tveimur mörkum á liðunum.

Danir voru á undan að skora framan af leik þar sem hornamaðurinn Anders Eggert fór mikinn en hann skoraði sex mörk í fyrri hálfleik.

Í stöðunni 8-7 fyrir Dani kom góður kafli hjá Spánverjum sem skoruðu þrjú mörk í röð og komust tveimur mörkum yfir, 8-10. Þeir skoruðu hins vegar aðeins eitt mark á síðustu átta mínútum fyrri hálfleik á meðan Danir skoruðu þrjú. Staðan í hálfleik var jöfn, 11-11.

Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar byrjuðu seinni hálfleikinn betur og komust þrívegis tveimur mörkum yfir á fyrstu tíu mínútum hálfleiksins.

Mikkel Hansen var öflugur á þessum kafla en þessi mikla skytta skoraði fimm af sjö fyrstu mörkum Dana í seinni hálfleik. Mensah gerði hin tvö en Spánverjum gekk illa eiga við þá félaga.

En líkt og í fyrri hálfleiks kom góður kafli hjá heimsmeisturunum um miðjan seinni hálfleik. Þeir breyttu stöðunni úr 18-16 og í 18-20 og voru komnir með gott tak á leiknum.

Danir gáfust hins vegar ekki upp og eftir leikhlé Guðmundar skoruðu þeir þrjú mörk í röð og komust yfir, 23-22, þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum.

Spánverjar náðu að jafna í 23-23 og við tók sá æsilegi lokakafli sem áður var lýst.

Rivera var markahæsti í liði Spánar með tíu mörk en Cañellas kom næstur með fimm mörk. Þá skoraði Rául Entrerríos fjögur mörk.

Eggert og Hansen voru markahæstir í liði Danmerkur með sex mörk hvor. Hansen skoraði hins vegar ekki mark síðustu 20 mínútur leiksins. Mensah skoraði fjögur mörk, öll í seinni hálfleik.

Danir, sem töpuðu sínum fyrsta leik á HM í kvöld, mæta Slóvenum á föstudaginn í leik um réttinn til að leika um 5. sætið. Lærisveinar Guðmundar leika svo annað hvort um 5. eða 7. sætið á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×